Auglýst útboð

Þurrfræsing á Vestursvæði 2019

24.5.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í þurrfræsun og lögn á einfaldri klæðingu á Vestfjarðarvegi og Snæfellsnesvegi. Samtals 12,3 km.

Helstu  magntölur:

  •                 Þurrfræsing og jöfnun                     82.000 m2
  •                 Einföld klæðing                                 82.000 m2
  •                 Efra burðarlag afrétting                        620 m3

 Helstu magntölur flutnings eru: 

  •                  Flutningur steinefna                           1.850 m3
  •                 Flutningur bindiefna                               128 tonn

Verkinu skal að fullu lokið með neðra lagi klæðningar fyrir 1. september 2019.

Útboðsgögn verða afhend á USB-lyklum hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. maí 2019.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.