Auglýst útboð
Fáskrúðsfjörður – stálrör 2016
Vegagerðin, f.h. Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, óskar eftir tilboðum í efniskaup fyrir stálrör.
Helstu magntölur:
- Stálrör Ø400 og 325mm, lengd 18, 20 og 22 m, 69 stk. eða um 125 tonn.
Efni skal afhent fyrir júlílok 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 3. maí 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 18. maí 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.