Auglýst útboð

Yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2016, blettanir með klæðingu

7.3.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í blettanir með klæðingu á Vestursvæði og Norðursvæði á árinu 2016.

 Helstu magntölur:

  • Blettun (k1) útlögn á Vestursvæði 160.000 m2
  • Blettun (k1) útlögn á Norðursvæði 161.200 m2

 Verki skal að fullu lokið 1. september 2016.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. mars 2016.

Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.