Auglýst útboð

Vetrarþjónusta Þingeyri – Flateyri – Suðureyri 2016-2019

6.3.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2016-2019 á eftirtöldum leiðum:

  • Vestfjarðavegur (60): Þingeyri – jarðgöng í Breiðadal 36 km.
  • Flateyrarvegur (64): Vestfjarðavegur – Flateyri 7 km.
  • Súgandafjarðarvegur (65): Jarðgöng í Botnsdal – Suðureyri 11 km.
  • Svalvogavegur (622): Þingeyri – Flugvallarvegur 3 km.

Helstu magntölur á ári eru:

Akstur mokstursbíla 37.500 km.

  • Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2019.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Dagverðardal Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. mars 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.