Auglýst útboð

Vetrarþjónusta í Barðastrandarsýslum 2016-2019

6.3.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2016-2019 á eftirtöldum leiðum:

  • Vestfjarðavegur (60): Fjarðarhornsá í Kollafirði – Flókalundur 56 km.
  • Barðastrandarvegur (62): Flókalundur – Patreksfjörður 60 km.
  • Bíldudalsvegur (63): Barðastrandarvegur - Bíldudalsflugvöllur 34 km.
  • Tálknafjarðavegur (617): Bíldudalsvegur – Tálknafjörður 2,9 km.
  • Ketildalavegur (619): Bíldudalsvegur – Hafnarteigur 1,2 km.

Helstu magntölur á ári eru:

  • Akstur mokstursbíla 38.300 km.

Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2019.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Mikladalsvegi á Patreksfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. mars 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.