Auglýst útboð

Yfirlagnir og blettanir á Suðursvæði 2016, klæðing

6.3.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir og blettanir með klæðingu á Suðursvæði á árinu 2016.

Helstu magntölur:

  • Yfirlagnir (K1) með þjálbiki             107.000 m2
  • Yfirlagnir (K2) með þjálbiki               10.500 m2
  • Yfirlagnir (K1) með bikþeytu            91.200 m2
  • Blettanir (K1) með þjálbiki                50.000 m2
  • Blettanir (K1) með bikþeytu              50.000 m2

Verki skal að fullu lokið 1. september 2016.

Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. mars 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.