Auglýst útboð

Akureyri – Hofsbót, breytingar á smábátahöfn

15.1.2016

Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.

 Helstu verkþættir og magntölur eru:

   Upptekt á núverandi garði um 6.500 m³ 

   Dýpkun um 1.100 m³

   Bygging nýs garðs um 6.190 m³ 

   Fylling við Torfunesbryggju um 8.000 m³ 

Verkið er áfangaskipt, fyrri áfanga skal lokið eigi síður en 1. maí 2016  og þeim síðar eigi síðar en 1. júní 2016

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka)  og á hafnarskrifstofu Hafnasamlags Norðurlands, Geislagötu 9 á Akureyri, frá og með þriðjudeginum 19. janúar 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. febrúar 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.