Auglýst útboð

Reykjanes, sjóvarnir 2015

18.12.2015

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir á nokkrum köflum í Sandgerðisbæ og Sveitarfélaginu Garði. Bæði er um að ræða nýjar varnir og endurbyggingu á eldri vörnum.

Helstu magntölur:

    Útlögn grjóts og kjarna, um 9.000 m³

    Endurröðun grjóts, um 3.500 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2016.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 22. desember 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. janúar 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.