Auglýst útboð

Siglufjörður, endurbygging Bæjarbryggju

16.10.2015

Hafnarsjóður Fjallabyggðar óskar eftir tilboði í ofangreint verk.

Helstu verkþættir og magntölur eru:

·           Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi Bæjarbryggju,  um 205 m.

·           Fylling og kjarni, 22.000 m³.

·           Jarðvinna, uppúrtekt og þjöppun.

·           Reka niður 162 stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum.

·           Steypa um 227 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

·           Grjótgarður, um 60 m langur.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. júní 2016.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, frá og með þriðjudeginum 20. október 2015.  Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3.nóvember 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.