Auglýst útboð

Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði 2015 - 2017

18.9.2015

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á eftirfarandi svæðum með samtals 4 bílum:

    Reykjanesbraut – Suðurnes

    Höfuðborgarsvæðið

    Vesturlandsvegur, Hvalfjarðarvegur og Þingvallavegur

    Vegir á svæði Reykjavík – Selfoss

    Uppsveitir Árnessýslu

    Rangárvallasýsla og Flói

Helstu magntölur eru:

    Klukkustundir við ráðgjöf og eftirlit                 11.509   klst.

    Áætlaðir kílómetrar við ráðgjöf og eftirlit      190.000   km

Verktími er til 1. maí 2017.

Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 21. september 2015. Verð útboðsgagna er 2.000 krónur.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. október 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.