Auglýst útboð

Niðurrekstrarstaurar fyrir brú á Morsá

6.7.2015

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í framleiðslu og flutning á steyptum niðurrekstrarstaurum undir brú á Morsá á Hringvegi á Skeiðarársandi.

Helstu magntölur eru:

Framleiðsla niðurrekstrarstaura          1440 m

Flutningur niðurrekstrarstaura              268 tonn

Verklok eru fyrir 30.september 2015.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 6. júlí 2015. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.