Auglýst útboð

Niðurrekstrarstaura undir brú á Þorskafjörð

3.3.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í framleiðslu og flutning á steyptum niðurrekstrarstaurum undir brú á Þorskafjörð í Gufudalssveit.

Helstu magntölur eru:

·         Framleiðsla niðurrekstrarstaura            6.520 m

·         Flutningur niðurrekstrarstaura              1188,3 tonn

Verklok eru fyrir 1. júlí 2021

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 3.mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. mars 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.