Auglýst útboð

Neskaupstaður og Eskifjörður, sjóvarnir 2021

2.11.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir á Neskaupstað og Eskifirði. Verkið felst í gerð 250 m langrar sjóvarnar við gamla frystihúsið á Neskaupstað og endurbyggingu sjóvarnar við Strandgötu á Eskifirði á um 95 m kafla.

Helstu magntölur:

  • Heildarmagn af grjóti og sprengdum kjarna um 3.900 m3
  • Upptekt og endurröðun grjóts um 300 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. júní 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 3. nóvember 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  16. nóvember 2021. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.