Auglýst útboð

Mófellsstaðavegur (507): Borgarfjarðarbraut - Hreppslaug

11.4.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á 1,6 km kafla á Mófellsstaðavegi (507-01) Borgarfjarðarbraut - Hreppslaug.

Helstu magntölur eru:

  • Fyllingar                                          2.117 m3
  • Styrktarlag                                     3.700 m3
  • Burðarlag                                       1.800 m3
  • Tvöföld klæðing                          10.300 m2
  • Frágangur fláa                            22.200 m2
  • Reiðvegur                                      4.800 m2

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 13.  apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. apríl 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.