Auglýst útboð

Landeyjahöfn uppsetning á fenderum 2020

23.11.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í uppsetningu á fenderum í Landeyjahöfn.

 Helstu magntölur:

·         Viðgerð á steyptum kantbita

·         Niðurrekstur á burðarstaurum fyrir fendera

·         Uppsetning á 6 staurafenderum

 Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 15. mars 2021.

 Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 23. nóvember 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 8. desember 2020.

Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.