Auglýst útboð
Krýsuvíkurvegur (42) um Vatnsskarð
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur á 1,5 km kafla Krýsuvíkurvegar (42-01/02) þar sem hann liggur um Vatnsskarð.
Helstu magntölur eru:
- - Skeringar 12.715 m3
- - Fláafleygar 4.995 m3
- - Fyllingar 16.765 m3
- - Styrktarlag 2.800 m3
- - Burðarlag 1.775 m3
- - Tvöföld klæðing 9.380 m2
- - Vegrið 720 m
- - Frágangur fláa 24.575 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2019.
Útboðsgögn verða afhent á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. maí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.