Krýsuvíkurvegur (42), hringtorg við Hellnahraun II
Vegagerðin og Hafnarfjarðarbær bjóða út gerð hringtorgs á Krýsuvíkurvegi. Frá nýja torginu skal gera vegtengingar, annars vegar að Klukkutorgi og hins vegar að Dofrahellu. Einnig er innifalið í útboðinu uppsetning veglýsingar, lagnavinna, landmótun, bráðabirgðavegur o.fl.
Helstu magntölur eru:
- Rif
malbiks 2.700
m2
- Bergskering 9.100
m3
- Fyllingarefni
úr bergskeringum 1.900
m³
- Efni
flutt á losunarstað 7.300
m³
- Ofanvatnsræsi 290
m
- Neðra
burðarlag 2.500
m³
- Efra
burðarlag 1.150
m³
- Tvöfalt
malbik 1.800
m²
- Einfalt
malbik 2.800
m²
- Kantsteinn 980
m
- Eyjar
með steinlögðu yfirborði 360
m2
- Götuljósastólpar 28
stk.
- Frágangur fláa 2.450
m²
Verkinu skal að lokið eigi síðar en 15. september 2017.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 11. apríl 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2017 og verða þau opnuð kl. 14:15 þann dag.