Auglýst útboð
Kantsláttur á Suðursvæði 2019-2020, þjónustustöð Vík
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í grasslátt á Suðursvæði 2019-2020.
Helstu magntölur á ári eru:
Kantsláttur 250 km
Verki skal að fullu lokið 20. september 2020.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 25. febrúar 2019. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. mars 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.