Auglýst útboð

Ísafjörður: Fyrirstöðugarður við Sundabakka 2020

8.11.2020

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum  í gerð um 460 metra langs fyrirstöðugarðs við Sundabakka.

Helstu magntölur:

·         Upptekt og endurnýting grjóts og sprengds kjarna 10.000 m³.

·         Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 11.200 m3.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. apríl 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 9. nóvember 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 24. nóvember 2020.

Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.