Auglýst útboð

Húsavík – Bökugarður þekja, lagnir og raforkuvirki

27.3.2017

Hafnarsjóður Norðurþings óskar eftir tilboð í ofangreint verk.

Helstu verkþættir eru:

  • ·           Steypa rafbúnaðarhús, stöpla, brunna og polla.
  • ·           Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn.
  • ·           Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum
  • ·           Jafna undir þekju
  • ·           Steypa þekju um 4.000 m2
  • ·           Raforkuvirki

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2017.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7–9 á Húsavík og hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 28. mars 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.