Auglýst útboð

Hringvegur (1) um Vík, hringtorg og endurbætur

10.5.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboði í gerð hringtorgs á Hringvegi í Vík í Mýrdal auk breytinga allra aðliggjandi vega og stíga til að ljúka gerð vegaframkvæmdanna endanlega. Til framkvæmdanna teljast einnig breytingar á Hringveginum rétt vestan hringtorgsins á móts við Víkurskála, gerð og breytingar á umferðareyjum þar. Einnig skal endurnýja vegyfirborðið um vestanverðan Hringveginn í gegnum Vík, að fyrstu bæjargötunni (Mýrarbraut). Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Mýrdalshrepps. Helstu magntölur:
Fræsing
Umframefni úr skeringum
Ofanvatnsræsi
Brunnar og niðurföll
Styrktarlag
Burðarlag
Tvöfalt malbik
Kantsteinar
Hellulögn
Umferðarmerki
Götulýsing, skurðgröftur og strengur
Ljósastaurar
Málun
7.020
961
585
30
6.399
833
10.570
2.542
537
63
560
32
1.348
m2
m3
m
stk.
m3
m3
m2
m
m2
stk.
m
stk.
m

Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2020..

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 11 . maí  2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. maí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.