Auglýst útboð
Hringvegur (1) um Steinavötn og Fellsá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði nýrra brúa yfir Steinavötn og Fellsá ásamt uppbyggingu á Hringvegi í Suðursveit á tveimur köflum beggja megin brúa.
Helstu magntölur vegna vega eru:
- Skeringar 6.365 m3
- Fyllingar 19.685 m3
- Burðarlag 2.345 m3
- Tvöföld klæðing 11.585 m2
- Fláafleygar 6.886 m2
- Ræsagerð 84 m
- Grjótvörn 3.995 m3
- Bráðabirgðabrú 20,6 m
Helstu magntölur vegna brúa eru:
- Vegrið 352 m
- Gröftur 5.100 m3
- Niðurrekstrarstaurar 162 stk.
- Bergboltar 42 stk.
- Mótafletir 3.569 m2
- Steypustyrktarstál 201,5 tonn
- Spennt járnalögn 41,1 tonn
- Steypa 2.296 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi
síðar en 1. september 2020.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 1. júlí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. júlí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.