Auglýst útboð

Hringvegur (1) um Öxnadalsheiði, styrking

3.6.2019

Vegagerðin býður hér með út styrkingu vegar og endurbætur á vegfláum á Hringvegi 1-p1, á Öxnadalsheiði. Um er að ræða tvo vegkafla og er annar er 800 m og hinn 300 m að lengd.

Helstu magntölur eru:

  • Efnisvinnsla                               1.500 m³
  • Fyllingar, fláafleygar                 8.850 m³
  • Burðarlag neðri hluti                   324 m³
  • Burðarlag efri hluti                      660 m³
  • Þurrfræsing                                8.300 m2
  • Tvöföld klæðing                         5.300 m2
  • Frágangur fláa                         19.050 m2

Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2019.

Útboðsgögnin eru afhent hjá Vegagerðinni  Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 4. júní 2019.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 19. júní 2019  og verða þau opnuð  þar kl. 14:15 þann dag.