Auglýst útboð

Hringvegur (1) um Ölfusá - Sandblástur og málun grindar

11.5.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sandblástur og málun á brú yfir Ölfusá.

Helstu magntölur eru:

                Sandblástur       1511 m2

                Málun                  1511 m2

                Varnir                   270 m

Verklok eru 25. ágúst 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 14. maí 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. maí 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.