Auglýst útboð

Hringvegur (1) um Jökulsá á Sólheimasandi, eftirlit

30.12.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með smíði brúar á Hringveginum, yfir Jökulsá á Sólheimasandi, endurgerð vegarins beggja vegna og gerð bráðabirgðavegar. 

Verkið verður unnið á árinu 2021 og eru helstu verkþættir:

  • Gerð bráðabirgðavegar og tenging við bráðabirgðabrú sem verkkaupi hefur reist.
  • Rif núverandi brúar að stærstum hluta.  Millistöplar rifnir niður að sökklum, en sökklar og rofvörn                 endurnýttir.  
  • Gerð nýrra steyptra endaundirstaðna.
  • Smíði rúmlega 163 metra langrar tvíbreiðrar steinsteyptrar, eftirspenntrar bitabrúar.
  • Gerð nýs vegar beggja vegna brúarinnar.
  • Fjarlægja bráðabirgðabrú og veg í lok verks. 

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mið­viku­deg­inum 30. desember 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, fimmtudaginn 14. janúar 2021.  

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um
nöfn bjóðenda í útboðinu. Mánudaginn 18. janúar 2021 verður bjóðendum tilkynnt  verðtilboð hæfra bjóðenda.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.