Hringvegur (1) um Jökulsá á Sólheimasandi (EES)
Heildarlengd vegkafla á Hringvegi er um 1 km, 9 m breiður með 3,5 m breiðum akreinum og 1,0 m breiðum öxlum. Lengd bráðabirgðavegar er um 1 km. Ný brú verður eftirspennt bitabrú í fimm höfum, alls 163 m.
Helstu magntölur eru:
Vegagerð:
- · Fyllingar 27.000 m3
- · Ónothæfu efni jafnað á losunarstað 29.000 m3
- · Styrktarlag 11.280 m3
- · Burðarlag 3.000 m3
- · Einföld klæðing 6.900 m2
- · Tvöföld klæðing 8.800 m2
- · Grjótvörn 500 m3
- · Bitavegrið, uppsetning 532 m
- · Rif á brúm 2 stk.
Brúargerð:
- · Gröftur 3.200 m3
- · Fylling við steypt mannvirki 1.440 m3
- · Mótafletir 3.970 m2
- · Steypustyrktarjárn 304 tonn
- · Spennt járnalögn 28 tonn
- · Steypa 2.136 m3
- · Vegrið á brú 324 m
Verkinu skal að fullu
lokið fyrir 15. nóvember 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 25. september 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 27. október 2020.
Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).