Auglýst útboð

Hringvegur (1), Fossvellir-Lögbergsbrekka, eftirlit (EES)

13.6.2021

Vegagerðin býður hér með út eftirlit með útboðsverkinu Hringvegur (1), Fossvellir - Lögbergsbrekka. Verkið felur í sér tvöföldun Suðurlandsvegar á um 3,3 km kafla ásamt gerð hliðar- og tengivega og undirganga fyrir ríðandi umferð.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í byrjun árs 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 13. júní 2021  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí 2021. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Föstudaginn 16. júlí  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.