Auglýst útboð

Hringvegur (1) Biskupstungnabraut - Hveragerði, Ölfusvegur um Varmá, eftirlit

29.11.2021

Vegagerðin býður hér með út eftirlit með útboðsverkinu Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði, Ölfusvegur um Varmá. Verkið felur í sér eftirlit með nýbyggingu á u.þ.b. 780 m löngum vegkafla á Ölfusvegi og Sunnumörk í Hveragerði og gerð nýrrar brúar á Varmá norðan Suðurlandsvegar og reiðstígs undir brúna.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í september 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign   frá og með mánudeginum 29. nóvember 2021  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. desember 2021.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Þriðjudaginn 21. desember  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.