Auglýst útboð

Hringvegur (1), Biskupstungnabraut- Hveragerði 1. áfangi - Eftirlit

14.11.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit fyrir fyrsta hluta breikkun Hringvegar ásamt gerð nýrra gatnamóta við Vallaveg og Ölfusborgaveg. Heildarlengd kaflans er um 2,5 km. Til framkvæmdanna telst einnig gerð nýrra hliðarvega sem tengjast nýjum vegamótum, annars vegar Ölfusvegar frá Ölfusborgavegi að Hvammsvegi og hins vegar Ásnesvegi frá Vallavegi að Ásnesi. Inni í verkinu er einnig breikkun brúar yfir Varmá og undirgöng austan Varmár fyrir gangandi og ríðandi.

Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu

Verkið er boðið út á evrópska efnahagssvæðinu. Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn verða seld á minnislyklum hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með miðvikudeginum 14. nóvember 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. desember  2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.

Síðari opnunarfundur verður á sama stað miðvikudaginn 2. janúar 2019 kl. 14:15 þar sem lesin verður upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.