Auglýst útboð

Hólmavík – Endurbygging stálþils 2020

23.3.2020

Strandabyggð óskar eftir tilboðum í verkið „Hólmavík – Endurbygging stálþils 2020“.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
  •     Reka niður 41 tvöfalda stálþilsplötu af gerð AZ 18-10/10.
  •     Ganga frá stagbita og stögum.
  •     Steypa 10 akkerisplötur.
  •     Steypa um 51 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
  •     Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 1,300 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2020. Framkvæmdir geta ekki hafist fyrr
en 7. júní 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudaginn 23. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.