Auglýst útboð
Hjólfarafyllingar og axlaviðgerðir á Suðursvæði og Austursvæði 2018
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hjólfarafyllingar og axlaviðgerðir á Suðursvæði og Austursvæði 2018.
Helstu magntölur eru:
- Heflun axla 20
km
- Hjólfarafylling með flotbiki 39.090
m2
- Afrétting með kaldbiki, axlir og sigkaflar 31.280 m2
Verki skal lokið fyrir 1. september 2018.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirð, Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 18. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 3. maí 2018 og verða tilboðin opnuð þar kl. 14:15 þann dag.