Grundarfjörður – Lenging Norðurgarðs, stálþilsrekstur 2019
Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu
verkþættir eru:
· Gerð á 90 m löngum bermugarð.
· Rekstur 122 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur, uppsetning staga og festinga.
· Jarðvinna aftan við stálþil
· Steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum og fríholtum.
Bygging bermugarðs skal lokið eigi síðar en 15. janúar 2020.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1.júní 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 12. september 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 föstudaginn 27. september 2019.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.