Auglýst útboð

Grundarfjörður – Lenging Norðurgarðs, stálþilsrekstur 2019

12.9.2019

Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.

Helstu verkþættir eru:

·         Gerð á  90 m löngum bermugarð.

·         Rekstur 122 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur, uppsetning staga og festinga.

·         Jarðvinna aftan við stálþil

·         Steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum og fríholtum.

Bygging bermugarðs skal lokið eigi síðar en 15. janúar 2020. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1.júní 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með fimmtudeginum 12. september 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 föstudaginn 27. september  2019.  

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.