Auglýst útboð

Grindavík - Viðgerð Kvíabryggju og stormpolla 2021

25.7.2021

Hafnarstjórn Grindavíkur óskar eftir tilboðum í viðgerð á Kvíabryggju og smíði stormpolla ásamt stagi og toghlera.

Helstu verkþættir eru:

·         Endurnýja u.þ.b. 420 m² af furu bryggjudekki,

·         Endurnýja u.þ.b. 60 m af kanttré og langböndum

·         Endurnýja u.þ.b. 10 skástífur og 3 stiga

·         Reka viðbótar staura u.þ.b. 7 stk.

·         Smíði, steypa og uppsetning á einum 100 tonna stormpolla ásamt stagi og toghlera.

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 15. desember 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 26. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 17. ágúst 2021.

Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.