Auglýst útboð
Grafningsvegi (360), Hagavík - Nesjavellir
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Grafningsvegar (360) frá Nesjavöllum og út fyrir Hagavík. Verkið felst í undirbyggingu vegarins á sama stað, lögn ræsa, útlögn og vinnslu burðarlaga og klæðingar á 5 km kafla.
Helstu magntölur eru:
- - Bergskeringar
1.000 m3
- - Aðrar skeringar
9.135
m3
- - Fyllingar
11.465 m3
- - Ræsalögn 168 m
- - Endafrágangur ræsa
16 stk.
- - Styrktarlag (neðra burðarlag) 8.810 m3
- - Burðarlag (efra burðarlag) 8.130
m3
- - Vegrið 395 m
- - Klæðing 32.650 m2
- - Frágangur
fláa
63.565 m2
Verklok eru 15. október 2018, útlögn klæðingar skal þó lokið fyrir 15. september 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 30. maí 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. maí 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.