Fræsing og afrétting vega á Austursvæði og Suðursvæði 2017
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í Fræsing og afrétting vega á Austursvæði og Suðursvæði á árinu 2017.
Helstu magntölur eru:
- Þurrfræsing 42.700 m2
- Efra burðarlag 2.850 m3
- Tvöföld klæðing 42.700 m2
- Klæðing, flutningur malar 1.300 m3
- Flutningur bindi og viðloðunarefnis 300 tonn
- Lögn stálröra D=1,0-1,9 m 12 m
Verki skal að fullu lokið 20. september 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 7 á Reyðarfirði, Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 12. júlí 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júlí 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.