Auglýst útboð

Fjarðabyggð – Norðfjörður, endurbygging Togarabryggju 2019

4.5.2019

Hafnarstjórn Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. 

Helstu verkþættir eru:

  • ·         Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn.
  • ·         Leggja vatns- og fráveitulögn.
  • ·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu þekju og malbik.
  • ·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.500 m².

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2019.

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni  Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og Hafnarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,  frá og með þriðjudeginum 7. maí 2019.

Skila skal tilboðum á Hafnarskrifstofu Fjarðabyggðar fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. maí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.