Auglýst útboð

Fjarðabyggð – Neskaupstaður, endurbygging Togarabryggju 2019

11.2.2019

Hafnarstjórn Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. 

Helstu verkþættir eru:

  • ·         Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju af núverandi bryggju.
  • ·         Reka niður 108 stk. tvöfaldar stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum.
  • ·         Jarðvinna, uppúrtekt, fylling og þjöppun.
  • ·         Steypa um 140 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2019

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 12. febrúar 2019. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. febrúar 2019 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.