Auglýst útboð

Efnisvinnsla á Vestursvæði 2019, Fossamelar

10.3.2019

Vegagerðin býður hér með út efnisvinnslu í námunni Fossamelar á Vestursvæði árið 2019, alls 20.000 m3.

Helstu magntölur eru:

  • Burðarlagsefni 0/22 mm                 14.000 m3
  • Klæðingarefni 8/11 mm                     2.000 m3
  • Klæðingarefni 11/16 mm                   2.000 m3
  • Klæðingarefni 4/8 mm                       1.600 m3
  • Úrharp 0/4 mm                                   1.000 m3
  • Berglosun                                           14.400 m3

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2019.

Útboðsgögn verða afhent á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og  Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 11. mars 2019.  

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. mars 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.