Auglýst útboð

Djúpivogur – Endurbygging hafskipabryggju 2021

20.7.2021

Hafnir Múlaþings óska eftir tilboðum í endurbygging hafskipabryggju á Djúpavogi.

Helstu magntölur:

·         Reka niður 140 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ13-700.

·         Ganga frá stagbita og stögum.

·         Steypa 54 akkerisplötur.

·         Steypa um 183 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

·         Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 14.000 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 20. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. ágúst 2021. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.