Auglýst útboð
Dalvíkurhöfn - Austurgarður, þekja og lagnir
Hafnarsjóður Dalvíkurbyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:
- · Steypa upp tvö rafbúnaðarhús, stöpla og brunna.
- · Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn.
- · Leggja vatnslögn og frárennslislögn
- · Jafna undir þekju
- · Steypa þekju um 3.100 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2019.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og í afgreiðslu Ráðhússins á Dalvík frá og með þriðjudeginum 19. mars 2019.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. apríl 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.