Auglýst útboð

Búðardalur – Sjóvörn við Ægisbraut og efnisvinnsla 2019

7.10.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvörn á Búðardal og efnisvinnslu. Verkið felst í byggingu sjóvarnar við Ægisbraut, lengd sjóvarnar eru um 200 m og efnisvinnslu á grjóti og kjarna. 

Helstu magntölur:

  •     Útlögn grjóts og sprengds kjarna um           1.800 m3
  •     Upptekt og endurröðun grjóts um                   600 m3
  •     Efnisvinnsla grjót og sprengdur kjarni um   1.800 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 7. október 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. október 2019. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.