Auglýst útboð
Borgarfjörður eystri, endurbygging brimvarnar við Hafnarhólma
Hafnarstjórn Borgarfjarðarhrepps óskar eftir tilboðum í endurbyggingu brimvarnar við Hafnarhólma. Um er að ræða endurbyggingu á um 70 m kafla.
Helstu magntölur:
- Upptekt og endurröðun um 900 m3
- Útlögn grjóts og kjarna úr námu um 1.350
m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. desember 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 29. ágúst 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. september 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.