Auglýst útboð

Bíldudalshöfn – Steypt þekja, lagnir og raforkuvirki 2021

9.5.2021

Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið „Bíldudalshöfn – Steypt þekja, lagnir og raforkuvirki 2021“.

Helstu verkþættir eru:

·         Saga og brjóta eldri þekju.

·         Steypa upp vatns- rafbúnaðarhús.

·         Leggja ídráttarrör.

·         Leggja vatns- og frárennslislagnir.

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu.

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 3150 m2.

·         Raforkuvirki.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 10. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. maí 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.