Auglýst útboð

Árbæjarvegur (271), Kvistir - Árbakki

6.6.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurmótun 2,6 km Árbæjarvegar frá núverandi klæðningarenda og tæplega að Árbakka, ásamt útlögn klæðingar.

Helstu magntölur eru:

  • Ræsi                                         36 m
  • Neðra burðarlag              4.000 m3
  • Efra burðarlag                  2.760 m3
  • Tvöföld klæðing              19.895 m2
  • Frágangur fláa                 14.815 m2

Verkinu skal að lokið eigi síðar en 15. september 2016.

Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 7. júní 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júní 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.