Auglýst útboð

Akureyri – Tangabryggja lenging til suðurs 2019

3.12.2018

Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.

Helstu verkþættir og magntölur eru:

  • ·         Steypa 51 ankersplötur.
  • ·         Niðurtekt á grindarmastri, 12 m.
  • ·         Upptekt á grjótvörn, um 900 m3.
  • ·         Dýpkun framan við nýja stálþilslínu niður í kóta -6,0, um 4.000 m3.
  • ·         Niðurrif á Sverrisbryggju framan Bústólpa.
  • ·         Niðurrif og uppsetning fjögurra stormpolla.
  • ·         Reka niður 128 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ32 -750 og ganga frá stagbitum og stögum.
  • ·         Rekstur á 21 tvöfaldar stálþilsplötur af gerðinni AZ20-700 sem bakþil.
  • ·         Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 6.000 m³.
  • ·         Steypa um 216 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Stálþilsrekstri skal lokið fyrir 1.maí 2019  og verkinu í heild eigi síðar en 1. júlí 2019.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Hafnasamlags Norðurlands, Fiskitanga á Akureyri, frá og með þriðjudeginum 4. desember 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á skrifstofu Hafnasamlags Norðurlands fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18.desember 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.