Akranesvegur (509): Faxabraut – Endurgerð og grjótvörn (EES útboð)
Vegagerðin óskar eftir tilboðum endurbyggingu vegkafla ásamt gerð grjótvarnar og lagnavinnu á Akranesvegi (509-02): Faxabraut. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar og veitufyrirtækja.
Helstu magntölur eru:
- Rif steypu í vegum og stéttum 10.000 m2
- Fyllingar 9.300 m3
- Götulýsing, skurðgröftur og strengir 1.000 m
- Rafstrengir 300 m
- Fráveitulagnir 1.300 m
- Kaldavatnslagnir 200 m
- Hitaveitulagnir 400 m
- Styrktarlag 4.500 m3
- Burðarlag 2.200 m3
- Malbik 16.000 m2
- Grjótvörn 37.000 m3
- Göngustígar 700 m2
- Kantsteinar 1.850 m
Verkinu skal að fullu lokið
eigi síðar en 1. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnudeginum 5. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.