Auglýst útboð

Húsavík - sjóvörn undir bökkum 2020

12.5.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvörn á Húsavík. Verkið felst í endurbyggingu og styrkingu sjóvarnar á um 200 m kafla.

 Helstu magntölur:

  •          Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 3.600 m3
  •          Endurröðun grjóts um 800 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 25 maí  2020  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. júní 2020. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.