Aðkomuvegur að gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri
Vegagerðin og Framkvæmdasýsla ríkisins óska eftir tilboðum í gerð 0,5 km langs vegar að fyrirhugaðri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri, auk jarðvegsskipta fyrir bílaplan og afvötnun þess.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 11.700 m3
- Fyllingar 4.500 m3
- Styrktarlag 6.000 m3
- Burðarlag 200 m3
- Frágangur fláa 7.000 m2
- Lagnir 150 m
Verklok eru 15. ágúst 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 27. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. maí 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.