Sprengisandsleið (26) milli Suður- og Norðurlands, drög að tillögu að matsáætlun
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Sprengisandsleið (26) milli Suður- og Norðurlands. Framkvæmdin felur í sér nýjan og endurbyggðan veg frá Sultartangalóni að Mýri í Bárðardal. Fyrirhugað framkvæmdasvæði er í þremur sveitarfélögum: Rangárþingi ytra, Ásahreppi og Þingeyjarsveit.
Núverandi vegur er 219 km langur sumarvegur og er á köflum aðeins niðurgrafinn slóði með óbrúuðum ám. Hann liggur hátt yfir sjó, eða mest í um 800 m hæð. Nýr vegur verður 187-197 km langur -háð leiðarvali, 8 m breiður og nokkuð uppbyggður vegur með bundnu slitlagi og brúuðum ám. Hönnunarhraði verður á bilinu (50) 70-90 km/klst. og háður landslagi þar sem við á. Áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif tveggja leiða.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur um miðhálendi Íslands milli Suður- og Norðurlands. Einnig að bæta aðgengi almennings að miðhálendinu til útivistar og til að styrkja ferðaþjónustu.
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á vef Vegagerðarinnar samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur til 20. nóvember 2014. Athugasemdir má senda með tölvupósti til helga.adalgeirsdottir@vegagerdin.is eða soley.jonasdottir@vegagerdin.is, eða senda til Vegagerðarinnar, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri.
Opið hús
Vegagerðin og Landsnet hafa haft samstarf um leiðarval vegna Sprengisandsleiðar og Sprengisandslínu, en mat á umhverfisáhrifum fyrir Sprengisandslínu er einnig að hefjast. Vegagerðin og Landsnet hafa ákveðið að standa sameiginlega að kynningarfundi um matsáætlanir þessara verkefna. Opin hús verða haldin á eftirtöldum stöðum:
- Þriðjudaginn 4. nóvember í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit kl. 18:00-22:00
- Miðvikudaginn 5. nóvember hjá Steinsholti sf., Suðurlandsvegi 1-3, Hellu kl. 16:00-20:00
Á opnu húsunum verða drög að tillögu að matsáætlun Sprengisandsleiðar og Sprengisandslínu kynnt með útprentuðum gögnum og með upplýsingum á skjávörpum og tölvuskjám. Fulltrúar frá Landsneti, Vegagerðinni og ráðgjöfum verða á staðnum til að ræða við gesti og svara fyrirspurnum.
Allir eru velkomnir